Lewis Carroll

Charles Lutwidge Dodgson, betur þekktur undir höfundarnafninu Lewis Carroll, var breskur heimspekingur, rökfræðingur, stærðfræðingur, ljósmyndari, prestur og rithöfundur. Hann er þekktastur fyrir það að hafa skrifað bókina Lísa í Undralandi (Alice's Adventures in Wonderland), og framhald hennar Gegnum spegilinn (Through the Looking-Glass), ásamt skopljóðinu Snarksveiðin (The Hunting of the Snark) og bullljóðið Jabberwocky.

Hann hafði dálæti á orðaleikjum, rökvillum, þrautum og ævintýrum, og hæfni hans hefur heillað fólk á öllum aldri. Verk hans hafa verið vinsæl frá því að þau voru gefin út og hafa haft víðtæk áhrif á barnabækur. Margir tuttugustu aldar rithöfundar hafa orðið fyrir verulegum áhrifum af verkum Lewis Carroll, til dæmis Jorge Luis Borges og James Joyce.